|
Dagsetning
23. febrúar 2012
|
05.10.2008 21:05:38 / evadrofn
eru einkunar orðin í dag, verð nú að segja að jeg er pínu eirðarlaus svona orðin stúdent og fínt, veit eiginlega ekkert hvað jeg á að gera af mér  en ákvað nú að láta aðeins heyra í mér héra það er orðið svo langt síðan síðast...... við fórum á árshátíð um helgina í Stykkishólmi og var það fínt Sævar Emil fór í pössun til mömmu og pabba og var því frá okkur í fyrsta sinn heila nótt, en það var bara allt í læ..... en já langaði bara aðeins að segja frá mér....er frekar glötuð í þessu bloggi hérna hmmmmmm eitthverjir sammála því????? dröfn
»
18.07.2008 18:14:29 / evadrofn
Í dag hefði mín ástkæra frænka Nanna orðið 54 ára gömul, en þeim áfanga náði hún aldrei vegna veikinda sinna. Nanna hefur verið í huga mér á hverjum degi og líður ekki sá dagur sem að jeg hugsa um hana. Lífið verður víst að halda áfram og sitjum við hin eftir án Nönnu. jeg ákvað að skrifa hérna loksins inn því að þetta hefur setið mjög mikið í mér og fær mann virkilega til að hugsa um vini og vandamenn, og þessi atburður sem tók Nönnu okkar frá okkur lét mig fara að hugsa öðruvísi. 2 vikum áður en Nanna dó kom hún í heimsókn stoppaði reyndar stutt en gvuð minn góður hvað jeg er þakklát fyrir það að hún kom við og fékk að sjá Sævar Emil í síðasta sinn, í það skipti sögðum við við hvor aðra jájá við sjáfumst eftir hálfan mánuð, þessi orð eru mér mjög erfið því að, að hálfum mánuði liðnum var hún farin frá okkur  jeg mun ALDREI ALDREI AFTUR segja svona og taka hlutina sem sjálfsögðum hlut. jeg held að jeg hafi bara aldrei grátið eins mikið eins og daginn sem hún var jörðuð jeg var með ekka lengi á eftir en rosalega er jeg þakklát að hafa fengið að vera viðstödd og að hafa fengið þann mikla heiður að halda á kransi fyrir mína elskulegu frænku. mikið rosalega var erfitt að kveðja hana og vona jeg innilega að jeg þurfi ekki að ganga í gegnum þetta aftur í bráð. Elsku Óli, Kristín, Sædís Birna, Viðar, Fanney, Sigurvin, gróa margrét, amma og afi og systkini og við hin lífið heldur víst áfram en gvuð er með okkur og Nanna við hlið hans að horfa niður á okkur og sérð hvað við erum sterk, verum sterk fyrir hana því hún var alltaf eins og klettur við hlið allra. Þetta hef jeg mín lokaorð í minni minningaræðu um Nönnu frænku en hún var lengi að koma. Saknaðar kveðjur Eva Dröfn og fjölskylda
»
31.05.2008 17:16:27 / evadrofn
ja hérna hér íslendingar eru nú ekki alveg í lagi haha þeir breyt aog breyta án þess að hugsa hvort að hlutirnir hafi bara ekki verið að ganga fínt áður en þeir ákváðu að breyta til, það er sífelt verið að slíta sveitastjórnarsamstarfi og mætti einna helst líkja þessu við farald jeg verð nú bara að segjast eins og er að jeg ælta innilega að vona að sveitastjórnarmenn (sérstaklega í dalabyggð) fari að hugsa hvað í fjandanum þeir eru að hugsa!! VG ættu að hugsa sig aðeins um áður en þeir segjast vilja starrækja sláturhúsið aftur og koma því á kjölina en þá verða líka bændurnir í þmei flokki að drullast til að standa með sínu sveitarfélagi og leggja inn þar ohh verð svo reið yfir svona asnaskap!! og H listinn vá alveg rólegir sko komið ekki með neina handbæra skýringu á því að segja upp sveitarstjóra jeg er bara nokkuð viss um að þið hafið allan tíman æltað að gera þetta og gáfuð honum né neinu séns alveg sama hvað skeði farið nú að hugsa blessuðu sveitarsjórnar menn og reynið að byggja upp sveitarfélagið í staðin fyrir að vera að EYÐA PENINGUM Í SVONA VITLEYSU!! jeg verð bar að segja fyrir mitt leyti að mig langar að flytja aftur vestur en mun líklega ekki gera það í bráð því að það er nú ekki mjög mikið fyrir ungt fólk með börn að sækja þar sem mér finnst mjög leitt, farið nú að byggja upp og hættið að eyða peningum í vitleysu svona til að segja þetta einu sinni en, og já það liggur við að maður færi lögheimilið sitt vestur aftur til að geta kosið rétt eins og síðast til að koma í veg fyrir svona vitleysu!! en já þetta er mín skoðun og hver og einn má hafa sína skoðun  en vildi bara tjá mig um þessi mál
»
09.04.2008 14:07:06 / evadrofn
Hvað er málið með að það sé að snjóa er ekki alveg sátt með þetta það er nú einu sinni kominn APRÍL og maður á víst brátt að fara að taka undan vetrardekkin en glætan að jeg geri það ef þessi fjandans veðrátta heldur áfram bara ekki séns   Bílslysin hrönnast upp alveg síðustu daga og eru frekar margir búnir að látast hvað er málið með það það þarf allaft gerast svo margt í einu og svo gerist ekkert heillengi hvernig væri bara að sleppa þessu yfir höfuð!!  Strumparnir eru komnir aftur í húsið mitt jibbú náði í strumpana 1 seríu á ensku um daginn og svo 2 þætti á íslensku því að það var ekki meira og vá hvað jeg er búin að sakna þeirra, þessar elskur eru bara æði  Það var eitthvað sem að jeg ætlaði mér að æsa mig yfir hérna en það var nú ekki merkilegra en það en að jeg er búin að gleyma því hvað það er hahaha ;D en er með eitt annað hérna til að æsa mig yfir og það er, drengir hérna á akranesi keyra eins og fávitar það fer voðalega í taugarnar á mér því að aftur og AFTUR OG AFTUR er jeg að sjá drengi og stelpur keyra eins OG FÍFL og það er sko vægt til orða tekið skal jeg segja ykkur! hvað þarf að gerast svo að þessir bjánar HUGSI er ekki ANSKOTANS nóg að það sé einn drengur LÁTINN eftir svona keyrslu og annar slasaður og þarf að lifa með þetta það sem eftir er og í þokkabót að þeir hefðu getað orðið öðrum ungum dreng að bana með þessum fífla látum en heppnin var með honum EN HÚN ER SKO ALS EKKI ALLTAF TIL STAÐAR og hana nú drullisti til að keyra ALMENNILEGA OG Á SKIKKANLEGUM HRAÐA hef nú voðalega lítið annað að segja langaði bara aðeins að blogga svo að fólk myndi ekki gleyma mér því að það virðist sem svo að það sé farið að gleyma mér soldið allaveganna fólk að VESTAN takið þetta til ykkar sem eigið hahaha ;D Birgitta og Helgi eru búin að eignast son til hamingju með það elskurnar  Edda og Hagalín eru líka búin að eignast son og innilega tilhamingju með það  Skírn á næsta leyti og kellan verður skírnarvottur jeyy stolta jeg ;D En þetta er nóg í bili Kv Dröfn
»
27.03.2008 09:37:30 / evadrofn
ja hérna hér vá DRAMA DRAMA DRAMA hvernig er þetta hægt að framleiða svona endalausa vitleysu það eru allir að ríða öllum innan hverra fjölskyldna og hver kona verður að giftast eða allaveganna að komast yfir 1 stk FORRESTER jesús minn eini þetta er nú meira bullið en samt verður maður að horfa á þetta einungis til að hneyklast haha eins og flestir v ita er jeg orðin nett mikill sjónvarpssjúklingur eftir að jeg eignaðist gullmolann minn og horfi jeg sko á allan fjandan komin á 7 þátt í survivor, langt framúr bold and the beautiful og nágrönnum, búin með gossip girl og greys anatomy, the nine, greek og margt fleira þetta er ekki eðlilegt en hvað annað á jeg að gera ekki nenni jeg að þrífa endalaust ónei takk einbýlishús já það er sko draumurinn, jeg lifi í draumi nananananananananana, byggja, kaupa, búðardalur- akranes humm margt sem að maður er að hugsa en þetta eru draumar  nýja þvottavélin er komin í hús jibbí geggjað hvít og flott og ekkert smá einföld jeiii hlakka til að setja í hana á eftir  litli frændi er ekki búinn að láta sjá sig ennþá en það styttist í hann, hann ætlar greinilega að vera alveg eins og frændi sinn og koma 12 dögum of seint og vera tekinn með valdi en þetta kemur í ljós  þetta er nóg í bili frá vallarbrautinni með leiðinlegu nágrönnunum haha Dröfn
»
12.03.2008 12:36:49 / evadrofn
Þetta er alger snildar síða www.hvaderimatinn.is hvaða gáfnaljósi datt þetta í hug þyrfti helst að kyssa hann á rasssinn þann  voðalega lítið að frétta héðan dagurinn líður og það eina sem að jeg geri þessa dagana er að taka til, þrífa þvott, vaska upp o horfa á sjónvarpið vá en skemmtilegt tilbreytingalaust líf úffff mig dreymir um eitt stykki EINBÝLISHÚS hver vill gefa mér eitt slíkt stykki?? eitthver að gefa sig fram  afhverju getur BM VALLÁ ekki verði í Búðardal??? hummm það væri algert himnaríki ef það væri svo því að þá gætum við flutt heim og Ragnar unnið í sinni steypu og jeg gert eitthvað sniðugt....jæja draumurinn lifir þó um að flytja heim kannski gerist það eitthvern tímann hver veit  Verð að játa að jeg er ekkert smá dugleg er 2svar í viku í aorobikki hjá Dagrúnu og það er geggjað gaman, ætla að halda áfram þegar að þessar 6 vikur eru búnar og viti menn mér bara finnst þetta geggjað gaman humm mér sem að þoldi ekki að hreyfa mig í eitthverju svona bullið haha en tímarnir breytast og mennirnir með ekki satt..... Eva Björk kom í heimsókn til mín í gær jibbíiiiiii fyrsti vinur/vinkona minn/mín sem að hefur komið í heimsókn til mín svo að núna skora jeg á hana SUNNU AÐ DRULLA SÉR Í HEIMSÓKN TIL MÍN og hvað þá BIRKI RAFN hver er nú það jesús hann er bara týndur, þannig að hér með lýsi jeg eftir Birkir BIRKIR HVAR ERTU???allir sem að hafa eitthverja vitneskju um hann Rabba minn endilega komiði því á framfæri og þeir sem að rekast á hann eitthverstaðar annarsstaðar en á djamminu endilega komiði því til skila að jeg er að LÝSA EFTIR HONUM!!!!! Birkir ef þú ert orðinn tölvuvæddur (sem jeg býst engan veginn við) láttu þá heyra í þér takk  jeg HATA nágranna vissuð þið það shittttt þeir eru voðalega leiðinlegir sérstaklega þeir sem að kunna ENGIN takmörk fyrir hávaða og er slétt sama um allt og alla nema sjálfan sig..........kræst þið eruð einfaldlega bara fífl....... jæja en er þetta ekki komið gott í bili ætla að reyna að fara að gera eitthvað uppbyggilegt eins og kannski hummmm þrífa þvott, vaska upp eða taka til hummm enn hvað þetta er innilega skemmtileg völ sem að jeg hef hérna fyrir hendi ætli jeg verði ekki bara að kasta uppá hvað jeg geri ojjj boring........allaveganna hef ekkert meira að segja í dag bæbæ Dröfn
»
11.02.2008 15:21:31 / evadrofn
»
25.12.2007 20:35:11 / evadrofn
Drengurinn hefur fengið nafnið Sævar Emil  Gleðileg jól og farsælt komandi nýtt ár... Jólakveðja Eva Dröfn
»
10.12.2007 00:06:49 / evadrofn
Prinsinn kominn heim loksins eftir
mikla bið um að fá að fara heim
við vorum orðin svolítið þreytt á að
vera uppá sjúkrahúsi
en fengum að fara heim í gær sem var
sko alger sæla
og höfum við það öll rosalega gott og
erum svakalega ánægð.
Prinsinn kom í heiminn 3
des eins og jeg var búin að skrifa hérna inn að hann ætti að gera,
en hann ákvað sjálfur að reyna að komast í heiminn og byrjaði jeg
að fá verkina um kvöldið, sagði þó engum frá því, því að jeg var
ekki viss um hvort að þetta væri þetta í alvörunni eða bara
eitthvað bull í mér......en allaveganna vaknaði jeg svo kl 3 um
nóttina með verki og prófaði að taka tímann á milli en var samt sem
áður ekki viss um eitt né neitt, Ragnar svaf eins og enginn væri
morgundagurinn við hliðiná mér og hafði það gott á meðan að jeg fór
á klósettið á 10 min fresti og kvaldist þess á
milli.
Kl hálf 6 um nóttina
ætlaði jeg að vekja ragnar og biðja hann um að nudda bakið á mér
svo að jeg gæti sofnað, en var svo eiginlega hætt við það þegar að
hann vaknaði og hann nuddaði mig, en ekki gat jeg sofnað, hann
vildi ólmur fara uppá deild en mig langaði að reyna að treina það
til kl 8 því að þá átti jeg hvort sem er að mæta......en hann hafði
betur og hringdi í jeg uppá deild og fékk að koma, þegar að jeg kom
þangað var jeg sett í monitor og var 2-3 min á milli, dugleg jeg að
treina þetta hehe 
Jeg var orðin mjög þyrst
og svöng því að jeg mátti ekkert fá fyrr en þær vissu hvað Villi
læknir vildi gera, þannig að jeg var orðin mjög þreytt og kvalin af
verkjum. En það var beðið til 8 þangað til að Villi læknir ÁTTI AÐ
KOMA en lét ekki sjá sig, jeg var komin með glaðloftið kl hálf 8 ca
en var farin að syngja þarna á tímabili haha frekar skondið var
alveg úti á þekju, en já Villi læknir ákvað að sofa YFIR SIG þennan
daginn (frekar pirrandi) og fór beint í aðgerð þegar að hann kom
þannig að hann lét ekki sjá sig hjá mér fyrr en kl 10 og þá kíkti
hann á aðstæður og sendi mig í keisara.
Mér var rúllað inná
skurðstofu, fékk pínu sjokk að koma þarna inn, það var allt
eitthvað svo svakalega sjúkrahúslegt allir í sloppum og allt hvítt
og þvílíkt ljós, en já þá kom sjokkið og var jeg mænudeyfð og
grenjaði úr mér líftóruna þarna á bekknum í leiðinni jesús hef ekki
grenjað eins mikið á ævi minni, en það var allt búið þegar að
deyfingin fór að virka og úfff það var sko nice NO MORE PAIN

Svo kom Ragnar loksins inn
til mín og þá byrjaði ballið og það tók nú ekki langan tíma, svo
fékk jeg aðeins að sjá hann og koma við hann og svo fóru feðgarnir
burt og jeg lá þarna eins og illa gerður hlutur og beið, var nú
eiginlega bara í móki allan tímann, en eini staðurinn sem að jeg
var ekki deyfð var jeg með svakalega verki
ojjjjj
Mánudagurinn er pínu í
móðu en Mamma og Pabbi og þóra, Ingó og Elín, Helgi og Birgitta
komu að heimsækja okkur
En erum komin heim nuna og
líður okkur öllum vel, erum bara ennþá soldið þreytt og erum að
átta okkur á hlutunum núna....
Takk allir fyrir gjafirnar
og kveðjurnar og allt það 
Gleymdi víst að segja að
hann var 19 merkur og 57 cm við fæðingu
Kv Eva Dröfn, Ragnar og
Stóri prins
»
02.12.2007 17:02:09 / evadrofn
Jæja núna eru komnar smá fréttir, það er nefninlega þannig að jeg mun vera komin 11 daga fram yfir settan dag í dag, og er þetta kríli semsagt mjög ÞRJÓSKT. Það er ekki búið að skorða sig ennþá, og er höfuðið frekar afturstætt, en snýr þó rétt. Allt getur nú gerst samt sem áður og vonandi að jeg fari á stað og að krílið skorði sig fyrir morgundaginn það væri sko óskandi. En já jeg er semsagt búin að vera FASTAGESTUR uppá deild og orðin nett pirruð á þessu sjúkrahúsi og öllu sem að því fylgir, jeg fór svo á föstudaginn og hitti Villa lækni og hann sagði að ef ekkert skeður um helgina (sem er ekki búið að ske, allaveganna ekki ennþá þá á jeg að byrja að fasta frá miðnætti til 8 í fyrramálið og mæta þá uppá deild og fara í keisara, þannig AÐ krílið kemur pottþétt í heiminn á morgun  Verð nú að viðurkenna að jeg er að verða nett stressuð yfir þessu, því að jeg hata sjúkrahús og hvað þá að fara í keisara sjæsssss en Ragnar elskan styður mig hundrað prósent í þessu og hugsar vel um mig...... Svo að allir fá eitthverjar fréttir seinnipartinn á morgun, nenni nú ekki að byrja á því að senda öllum sms glætan sorry elskurnar en jeg ætla mér að hitta krílið mitt aðeins fyrst áður en jeg fer að hugsa um aðra....... Sigga Lóa elskan fór í keisara á miðvikudaginn og horfði jeg á eftir henni þegar að þeir rúlluðu rúminu fram á skurðstofu og Óli kom og talaði við mig, jesús hvað jeg varð nett stressuð þá úff en það gekk allt vel hjá þeim, þau eignuðust strák sem var rúmir 16 merkur úfff hann hefur verið stór og reyndar ekkert skrítið því að kúlan á henni var nú ágætlega stór..... En held að þetta sé bara komið gott í bili, það koma líklega ekki fleiri fréttir hérna inn fyrr en næstu helgi eða svo þegar að krílið er komið í heiminn og við komin heim..... Whis me luck  Over Dröfn
»
22.11.2007 20:16:01 / evadrofn
Jæja prufa 3 eins gott að þetta
drullist inn........
Allaveganna síðan síðast er margt búið
að ske, það eru loksins komnar gardínur í alla glugga hjá mér sem
er als ekki leiðinlegt.....
Við erum komin með helling af nýju dóti
og hentum gamla dótinu út, við fengum hjá mömmu og pabba hennar
Helenu tvo sófa, skenk, tölvuskáp og hillusamstæðu allt úr furu,
við erum voðalega ánægð með þetta. Tengdó tók hornsófann og svo
seldum við hinn sófann á 10.000kr, og þar að auki var jeg búin að
selja nagladekkin mín á 18.000kr svo að við erum nú búin að græða
smá. 
Jeg er loksins búin með skólann sem er
alveg æði, kláraði síðasta prófið á mánudaginn síðasta, og guð hvað
það var gott að klára þetta , fegin er jeg, að geta loksins
bara chillað og þurfa ekki alltaf að vera á fullu er alveg æði, en
samt pínu kjánalegt því að jeg veit ekkert hvað jeg á að gera af
mér , sem betur fer er jeg búin að hafa dimmisjóið til að hugsa
um til að dreifa huganum. 
Hvað viðkemur barninu þá er jeg búin að
fá tvo fulla ruslapoka af fötum frá Sæunni og Döllu og er jeg búin
að sortera úr því það sem er svona hlutlausast, því að maður veit
nú ekki hvaða kyn krílið mun vera, svo er jeg búin að fá helling
frá mömmu og svo eitthverjar gjafir. Vaggan er orðin það fræg að
hún er komin upp en er bara full af fötum og drasli frá okkur .
Jeg er búin að koma kommóðunni inní herbergi og setja fötin í hana
svo að það er tilbúið, svo var mamma og pabbi úti í dk og keyptu
helling og svo er tengdó að koma heim í nótt frá Prag þannig að þar
kemur hellingur í viðbót af fötum og dóti 
Við erum komin með eina litla sæta kisu
hún fékk nafnið Tara og er virkilega heitt elskuð af okkur hérna
, Álfheiður beit hana í loppuna áðan sem var ágætt því að þá
Tara að hún á ekkert að vera að abbast uppá þær , hún Tara
er voðalega ljúf og góð og fer alltaf með mér á klósettið og inn
aftur á næturnar, hún eltir mig eins og hundur og vill alltaf vera
hjá manni, en hún tekur sínar tremmur og missir sig hérna og
hleypur um allt eins og brjálæðingur en hún þarf auðvitað líka að
leika sér, gæti aldrei látið hana frá mér núna, ótrúlegt hvað maður
er snöggur að mynda tengsl við þessi grey .
Settur dagur var í gær, en ekkert kom,
fór í skoðun og fékk þær æðislegu fréttir að jeg mun ennþá vera á
sjúkrabílnum anskotans vesen  , en jæja fæ víst engu um það
ráðið. Annars er allt gott, ef ekkert verður búið að gerast fyrir
laugardag þá á jeg að fara í monitor uppá deild á laugardaginn og í
skoðun á mánudaginn og aftur í monitor á miðvikudag/fimmtudag og
sett svo á stað 3-4 des ef þetta kríli ætlar að vera með stæla, það
hlýtur bara að vera svona nice þarna inni, þó svo að jeg sé nú
orðin svolítið þreytt .
Dimmisjó er á morgun JIBBÍÍIÍÍÍÍÍÍ
   loksins fæ jeg líka, byrjum á því að fara
í partý heim til Fríðu kl 6 í fyrramálið og svo er það auðvitað
vekja liðið á vistinni sem að jeg er sko búin að bíða eftir for a
LONG TIME, svo er bara morgumatur með kennurunum og svo eitthvað
fjör um morguninn þangað til að sjálft dimmisjóið er. Reyndar er
jeg nú ekki að hoppa og skoppa um sviðið með þeim í atriðum, en jeg
ætla að syngja með þeim lokalagið okkar, jeg verð heldur ekki í
búning því að jeg sá ekki frammá að komast í hann og hvað þá getað
dimmiterað, en þetta er bara fjör, jeg ætla að reyna að vera með
þeim eins mikið og jeg get, nema jeg fer ekki með þeim suður því að
jeg ætla að vera heima og hvíla mig á meðan að þau eru þar svo að
jeg hafi orku og krafta í að hitta þau um kvöldið og kíkja á
ballið, aldrei að vita nema að þetta komi kannski krílinu á stað,
maður veit aldrei. 
Veit ekki hvað jeg á að segja ykkur
meira í bili, ætla að reyna að finna mér svona mynda síðu til að
setja inn myndirnar okkar og svona, og svo kannski fer að koma síða
fyrir krílið ef mér virkilega leiðist
Over and out Dröfn
»
30.10.2007 11:44:30 / evadrofn
snjór er minn mesti óvinur arggggggg varð ekki sátt við veðurguðina þegar að jeg sá snjó á bílnum mínum.......jeg get allaveganna ekki lifað svona það er á hreinu..... Arndís er búin að eignast kríli, og varð það STRÁKUR en ekki STELPA eins og allir sögðu og héldu....hehe þannig jeg kem með stelpuna en já hann var 51cm og 12 1/2 mörk ekkert voðalega stór, enda fékk hann bara föt fyrir fyrirbura á sjúkrahúsinu hehe enn sætt.....Unnar alveg að standa sig eins og hetja með drenginn vá hvað hann er pabbalegur og Arndís stóð sig eins og hetja og mun gera það það sem eftir er jeg og Sigga Lóa fórum í heimsókn til þeirra upp á deild í gær og vorum í alveg rúman klukkutíma......við auðvitað þurftum að fá fullt af upplýsingum um hvað koma skal og leið mér mun betur eftir að hafa verið hjá þeim.....Unnar var svo frakkur og rétti okkur drenginn sinn og shit hvað jeg svitnaði eins og jeg veit ekki hvað kræst.....en hef afsökun var alveg í ullarpeysu og úlpu og sat við ofn og það var hevy heitt þarna inni.....en líka pínu stress hann er svo brotthættur litla greyið.... tengdó lenti í árekstri í gær og er bílinn hennar líklega ónýtur, hún meiddist ekkert alvarlega nema fékk bara hnikk, en bílinn lítur ekki mjög vel út.....taka skal fram að hún var í hundrað % rétti svo að þetta var sko als ekki henni að kenna......en konugreyið lendir í slysum í verjum mánuði, fyrst var það í rútunni með höfða og svo þetta.....vonandi er þetta komið gott hjá henni í bili. fór á kynningu heim til tengdó í gær, Hildur B á höfða var með kynningu, jeg keypti nú ekki mikið, jeg keypti bara kjallarasápu, raksápu fyrir Ragnar og svo sápustift þetta var nú bara 5000kr hjá mér en guð má vita hvað allar hinar keyptu fyrir mikið......Tengdó fékk svo gjöf fyrir að halda kynninguna....ef upphæðin fór yfir 10.000kr þá gat hún valið um þrjá hluti, svo ef upphæðin fór yfir 20.000kr þá gat hún valið enn meira. hún fékk fyrir mig (eða barnið barnaolíu og svo fékk hún sér eitthvað annað, svo að jeg var líka að græða á þessum kellum hehe  nuna sit jeg hérna í tíma hjá Steingrími Bragasyni og alveg HUNDLEIÐIST........ jesús minn það eru bara 3 vikur eftir, þetta er alveg fáranlega fljótt að líða jesús, getum við ekki stoppað tímann aðeins núna???!!! nei segi svona.....verð alveg pínu fegin þegar að þetta er búið og byrja á eitthverju öðru, eins og að reyna á móðurhlutverkið, en jæja það styttist í að tíminn klárist.....hafið það sem allra best AUGLÝSI EFTIR SLÚÐRI AF BALLINU HEIMA UM HELGINA......HEF HEYRT SMÁ EN VEIT EKKI HVAÐ SÉ SATT Í ÞVÍ........SVO KOMA SVO ELSKURNAR MÍNA SEGJA MÉR SLÚÐRIÐ
»
12.10.2007 13:02:10 / evadrofn
jeg er alltaf að reyna að finna eitthvað sniðugt til að skrifa þarna efst en jeg er einfaldlega bara það TÓM að mér dettur aldrei neitt í hug lítið búið að ske síðan síðast, bara búin að vera heima, skóla og fór að vinna síðasta laugardag, það var fínt en jeg var bara í 4 tíma sem er sko alveg meira enn nóg. eins og nánast alltaf sem jeg blogga þá sit jeg í íslensku 403 alveg yndislega leiðinlegur tími jæja þetta fer að styttast og finnst mér þetta líða kannski aðeins og fljótt núna....er ekki alveg tilbúin í þetta allt saman en á mánudaginn eru 5 vikur úffff og ef jeg verð 2 vikum fyrr þá eru bara 3 vikur scary scary scary......... jeg er ekkert búin að gera svo að það má sleppa því að spyrja mig um það og láta mig hafa samviskubit yfir því að vera ekki búin að neinu....en það er einfaldlega bara nóg að gera hjá mér er í skóla sem maður þarf víst að læra fyrir og svo reyni jeg að sofa inná milli þetta litla sem jeg sef  já herðu ljósmæður virðast ekki vinna á föstudögum, eða það var svarið sem jeg fékk á síðasta föstudag þegar að jeg fór uppá spítala til að fá fæðingarvottorð já finnst það mjög einkennilegt en jæja get víst lítið gert í því.......... jeg hef ekki ennþá hringt aftur uppá deild, beit það í mig að ef þær geta ekki verið almennilegar við mig þá nenni jeg ekki að tala við þetta lið, og ætla mér ekki að hringa fyrr en jeg er farin af stað og helst mjög mikið af stað......já jeg veit jeg er þrjósk en svona er þetta bara.... fór með íslensku 503 að gljúfrasteini í gær að hlusta á Guðnýju dóttir Halldórs Laxnes segja frá Veðramótum og Ungrúin góða og húsið, jesús jeg bara verð að sá þessa mynd veðramót úfff bara verð........ en já er þetta ekki komið gott í bili er að fara vestur á eftir að passa Þóru, Árni Haukur er að koma til landsins í dag og jeg fæ LOKSINS að hitta hann um helgina og verð að segja að mig hlakkar alveg ótrúlega mikið til  en jæja ætla að reyna að setja inn myndir hérna gá hvort að jeg get það over and out Dröfn
»
03.10.2007 20:38:38 / evadrofn
jesús minn almáttugur FANGARNIR Á KVÍABRYGGJU fóru í ferðalag!!!!!!!! hversu mikil fríðindi á þetta lið að fá???? þetta finnst mér alveg fáránlegt.........efað það á að hafa "opið hús" á þá ekki að sýna fangana líka??? jeg hefði viljað sjá þá!!!! jeg bara á ekki til eitt aukatekið orð.........svo sagði hann að það væri vel valið inn á Kvíabryggju???!!! hummmmm maður spyr sig er Árni johnsen gott dæmi um það???? og svo þegar að fangarnir þarna inni fá bara að vera á MSN Á DAGINN OG KVÖLDIN OG TALA VIÐ VINI SÍNA JÁ MSN SAGÐI JEG eru ekki fleiri sjokkeraðir eða??? svo annað en æðislegt að hann Jóakim sé loksins búinn að finna sér nýja konu eða réttara sagt gamla nýja hann var nú með þessa þegar að Friðrik var að ná í Mary sína......en gaman samt að hann skildi loksins byðja eitthverra aftur þá fæ jeg að horfa á enn eitt brúðkaupið jeminn hvað mér hlakkar til fint að hafa prins sem að er hommi sem er ennþá inní skápnum kannski skilur hann aftur og finnur sér aðra svo að jeg geti séð 3 brúðkaupið hjá honum hehe.....en hvað veit maður jeg bara get ekki beðið eftir að sjá brúðkaupið og hvað þá kjólinn jedúdda mína kjólinn sem Alexandra var í var engin SMÁSMÍÐI jeg vil svona JÁ TAKK......en nóg um þetta held að það sé enginn sem jeg þekki sem að veit nokkurt um dönsku kóngafjölskyldunnar......en hvað með það jeg býð í áhorf heima hjá mér þegar að giftingin á sér stað  jeg geggjað dugleg blogg 2 daga í röð 
»
Síður: 1 2 3 ... 7
|
Dagsetning
23. febrúar 2012
|